Víking Gylltur hlýtur gullverðlaun hjá Monde Selection 2025
Víking Gylltur hlýtur gullverðlaun á alþjóðlegu gæðakeppninni Monde Selection árið 2025 og staðfestir stöðu sína sem gæðabjór á heimsmælikvarða.
Víking Gylltur
Gullverðlaun fyrir íslenskt handverk
Víking Gylltur, einn af þekkustu bjórum Víking Brugghúss á Akureyri, hefur hlotið gullverðlaun á hinni virtu alþjóðlegu gæðakeppni Monde Selection 2025. Verðlaunin eru mikil viðurkenning á faglegu handverki og metnaði bruggaranna sem hafa staðið að framleiðslu Víking Gylltum frá upphafi.
Monde Selection er ein elsta og virtasta gæðakeppni heims fyrir drykkjarvörur. Sérfræðingadómnefnd, skipuð fagfólki úr bruggun, smökkun og matvælaiðnaði, leggur mat á meðal annars bragð, lykt, útlit og jafnvægi vöru. Gullverðlaunin staðfesta þau háu gæðaviðmið sem Víking Gylltur uppfyllir í hverjum einasta dropa.
„Við erum einstaklega stolt af þessum árangri,“ segir Atli Sigurður Kristjánsson, hjá Víking Brugghúss. „Þetta er viðurkenning á þeirri fagmennsku og ástríðu sem bruggarateymið okkar leggur í verkið á hverjum degi.
Það sem gleður okkur mest er að þessi viðurkenning endurspeglar það sem við höfum alltaf viljað skapa, gæðabjór við öll okkar gæða augnablik. Hvort sem það er við grillið, á ferðalagi með vinum eða þegar fagna þarf litlu sigrum dagsins, þá er Víking Gylltur hluti af því. Við skálum með öllum þeim sem gera þessar stundir sérstakar.“
Víking Gylltur hefur lengi verið í miklu uppáhaldi meðal íslendinga. Með þessum alþjóðlegu verðlaunum styrkist enn frekar staða hans sem gæðavara á heimsmælikvarða.
Um Monde Selection:
Stofnuð árið 1961, hefur Monde Selection í Brussel veitt alþjóðleg verðlaun fyrir gæði matvæla og drykkja. Dómnefndin er skipuð óháðum sérfræðingum víðsvegar úr iðnaðinum.
