Alþjóðleg viður-kenning á gæðum
CVíking Gylltur tryggði sér fyrsta sæti í útboði Vinmonopolet í Noregi árið 2025 og markaði þar með tímamót í sögu brugghússins.
Víking Gylltur
Víking Gylltur í 1. sæti
Víking Gylltur, einn af vinsælustu bjórum landsins, hefur hlotið einstakan heiður með því að tryggja sér fyrsta sætið í útboði Vinmonopolet í Noregi, sem er norska útgáfan af ATVR. Þetta þýðir að frá og með 1. mars verður Víking Gylltur fáanlegur í 191 verslun Vinmonopolet í Noregi sem er ekki ósvipað og ÁTVR hér á Íslandi. „Þetta er gríðarlegur heiður fyrir okkur og skemmtileg tilviljun að þetta hitti akkúrat á bjórdaginn okkar.“ Segir Atli Sigurður Kristjánsson Framkvæmdastjóri markaðssviðs hjá Víking.
Útboðið hjá Vinmonopolet er afar krefjandi, en þar eru fjöldinn allur af bjórum metnir eftir ströngum gæða- og bragðgreiningum. Víking Gylltur var þar í fyrsta sæti sem þýðir að bjórinn fékk hæstu einkunn í bragði og gæðum og hafði betur gegn úrvalsbjórum frá öðrum löndum á Norðurlöndunum
„það er alltaf gaman að vinna og Víking Gylltur er svo sannarlega vel að þessu kominn. Við leggjum mikið upp úr gæðum en Víking Gylltur er þekktur fyrir sín gæði sem hefur í langa tíð áunnið sér í hjörtu íslensku þjóðarinnar.“ Segir Atli.
Víking Brugghús hefur verið leiðandi í íslenskri brugghefð í yfir 85 ár og framleiðir fjölbreytt úrval af bjórum sem hefur notið vinsælda bæði innanlands og erlendis. Víking Gylltur er eitt af flaggskipum brugghússins og hefur sannað sig sem hágæða bjór.
Víking Gylltur er fáanlegur bæði áfengislaus í gleri og nýverið í dós.
